Um kennarana á Krílasálma-námskeiðunum
Þær Diljá Sigursveinsdóttir tónlistarkennari og Guðný Einarsdóttir organisti vinna saman að námsefni fyrir Krílasálma og hafa haldið námskeið í Fella- og Hólakirkju þar sem Guðný er organisti.
Guðný er menntaður tónmenntakennari og organisti en hún útskrifaðist úr tónmenntakennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 2001 og lauk námi í kirkjutónlist frá Konunglega Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn 2006. Í tónmenntakennaranáminu kynnti hún sér aðferðir við tónlistarkennslu ungra barna og kenningar um tónlistarþroska en tónlistarnámskeiðum fyrir ungbörn í kirkjum kynntist hún fyrst við nám sitt í Danmörku. Hún hefur verið organisti í Fella- og Hólakirkju frá 2007.
Diljá Sigursveinsdóttir lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík árið 1997. Síðar stundaði hún söngnám og barnakórstjórn við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Samhliða því námi stundaði hún fiðlukennaranám í anda Shiniki Suzuki og kynnti sér aðferðir við tónlistarkennslu ungra barna. Diljá er nú kennari við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Suzuki-Tónlistarskólann í Reykjavík. Diljá hefur haldið fjölda tónlistarnámskeiða fyrir ungbörn, bæði í kirkjum og tónlistarskólum.