Tónlistarnámskeið í kirkjunni fyrir ungbörn og foreldra þeirra
Krílasálmar eru frábær tónlistarnámskeið í kirkjunni fyrir ungbörn og foreldra þeirra. Námskeiðin voru fyrst haldin hér á landi árið 2008 en þau njóta mikilla vinsælda í kirkjum á hinum Norðurlöndunum.
Hér á síðunni má finna allar nánari upplýsingar um námskeiðin og einnig er hægt að skoða myndir frá fyrsta námskeiðinu sem haldið var vorið 2008.
Ef þú hefur áhuga á að komast á námskeið er um að gera að láta vita með því að senda tölvupóst á - gudny.organisti@gmail.com
Á síðunni birtast jöfnum höndum upplýsingar um námskeið sem þegar eru skipulögð en við erum einnig fúsar til að bæta við námskeiðum ef áhugi er fyrir hendi!

Ummæli eru óvirk